Keppa í London á laugardaginn
Í fyrramálið leggja strákarnir í liðinu Puulsu af stað áleiðis til London ásamt Sigursteini sem verður liðinu til halds og trausts. Strákarnir unnu á dögunum landskeppnina í olíuleitarleiknum Oilsim og öðluðst þar með þátttökurétt til að taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í London á laugardag. Líkt og í fyrra verður keppnin haldin í Imperial College sem er mjög virtur og eftirsóttur skóli.
Strákarnir hafa titil að verja því að í fyrra unnu Flipptuðru-skransarnir mótið ytra og urðu þar með alþjóðlegir meistarar í olíuleit og að auki 1000 pundum ríkari. Ferðin sjálf er líka ákveðin verðlaun því ferðakostnaður og allt uppihald er greitt af styrktaraðilum keppninnar.
Við vonum svo sannarlega að okkar mönnum gangi sem best ytra og helgin verði þeim ánægjuleg.





Skrifa athugasemd