Janúar
Blómaval - Sérvara opnar í mars
Miklar framkvæmdir standa nú yfir í húsakynnum Húsasmiðjunnar á Höfn en þar er verið að innrétta nýtt verslunarpláss. Við ætlum að opna hér verslunina Blómaval – Sérvara uppúr miðjum mars segir Kristján V.Björgvinsson verslunarstjóri (sem flestir hér þekkja betur sem Venna), þá ætlum við að stórauka vöruúrval fyrir Hornfirðinga með fjölbreyttri gjafavöru og sumarblómum.
Síðastliðið ár var mjög gott hjá Húsasmiðjunni á Höfn og vill Venni koma þakklæti til Hornfirðinga fyrir hvað þeir eru duglegir að versla í sinni heimabyggð og hann gat þess um leið að mikil aukning yrði í vöruvali verslunarinnar fyrir sumarið.





Skrifa athugasemd