Janúar
Aftur í nám
Aftur í nám

28.01.2010 Janúar

Hornfirskir vinnuveitendur hvetja starfsmenn sína til náms.

Á síðustu haustönn fór af stað tveggja ára samstarf milli FAS og Þekkingarnetsins um grunnnám fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði í íslensku og stærðfræði undir dyggri stjórn þeirra Zophoníasar Torfasonar og Helga Georgssonar. Námið fór vel af stað með 19 þátttakendum í íslensku og 13 í stærðfræði og hafa allir þátttakendur ákveðið að halda áfram nú á vorönninni. Næsta skólaár verður boðið upp á ensku, dönsku og náttúrufræði. Það eru þessar greinar sem oft standa í veginum fyrir því að fólk geti lokið starfsnámi t.d. sem húsasmiðir, sjúkraliðar, vélvirkjar og fl. Námið fer fram fjórum sinnum í viku frá kl. 16:00 – 19:00. Ákveðið var að kenna ekki á kvöldin þar sem vinnandi fólk er orðið þreytt eftir langan vinnudag. Við renndum blint í sjóinn hvað varðar viðbrögð vinnuveitenda en í ljós kom að þau voru mjög jákvæð. Vinnuveitendur á Hornafirði hafa tekið því afar vel að starfsfólk þeirra afli sér menntunar og styrki sig þannig sem starfsmenn. Hér erum við að tala um vinnuveitendur í verktakaiðnaði, vélsmiðjum, verkstæðum og fiskiðnaði sem og stofnanir á vegum Sveitarfélagsins sem reyndar hafa gengið á undan með góðu fordæmi undanfarin ár.

 

Um leið og ég fagna þessum mikla áhuga vil ég vekja athygli á því að nýr námsvísir Þekkingarnetsins hefur verið borinn í hvert hús í Sveitarfélaginu. Ég hvet fólk til þess að kynna sér framboðið og minni á að ef fólk hefur hugmyndir um námskeið sem það myndi langa til að sækja en er ekki í námsvísinum þá er bara að láta okkur vita og við sjáum til hvað hægt er að gera í málinu.

 

Ragnhildur Jónsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica