Janúar
Námskeiðið
Námskeiðið "Orkubóndinn"
Mynd 1 af 2
1 2

27.01.2010 Janúar

Fjörutíu nemendur FAS á námskeiði

 

Nú er skráningum lokið fyrir yfirstandandi önn í Framhaldsskólann. Um 260 manns stunda nú nám í skólanum.  Þar af eru um 170 á svæðinu sem er svipað og á haustönninni. Fjarnemendum hefur hins vegar fækkað mikið og skýrist það fyrst og fremst af niðurskurði fjárframlaga til skólans. Ríflega helmingur fjarnemenda er í námi á skipstjórnar- og vélstjórnarbrautum. Nú fara staðlotur í því námi ýmist fram í Tækniskólanum eða Borgarholtsskóla.

Í gær og í dag stendur yfir námskeiðið Orkubóndinn í Nýheimum. Þetta námskeið er undir stjórn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands en í samstarfi við Orkustofnun og ýmsar verkfræðiskrifstofur og fjallar um hvernig nýta má orku í okkar nánasta umhverfi. Þessi námskeið hafa verið haldin víðs vegar um landið að undanförnu við góðar undirtektir.
Hér á Höfn taka rúmlega 80 manns þátt í námskeiðinu og þar af eru rúmlega 40 nemendur úr FAS. Þetta eru fyrst og fremst nemendur sem á þessari önn taka áfangana EÐL203 og NÁT123 en í námsefni þessara áfanga er nokkuð verið að fjalla um mismunandi orkugjafa.
Í gær er verið að fjalla um orku og einnig eru kynningar á ýmsum möguleikum á orkuöflun. Í dag verður hópavinna fyrri hluta dagsins þar sem þátttakendur vinna í hópum eftir áhugasviðum. Í lok námskeiðsins verður síðan farið að Jaðri í Suðursveit en þar er nýbúið að reisa vatnsaflsvirkjun.
Það er kjörið að nýta tækifæri sem þetta til að sameina nám og viðburði í samfélaginu okkar. Hver veit nema á meðal okkar fólks reynist orkubændur framtíðarinnar sem finni lausnir á vaxandi orkuþörf. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica