Janúar
Atvinnumál kvenna
Atvinnumál kvenna

26.01.2010 Janúar

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

 

Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.
Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar.
Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt.

Nýmæli í styrkveitingununum að þessu sinni er að hluta af fjármagninu, sem til ráðstöfunar er, verður eyrnamerkt atvinnulausum konum sem hafa góðar viðskiptahugmyndir. Skilyrði er að þær hafi sótt um styrk hjá Vinnumálastofnun til að þróa eigin viðskiptahugmynd en það úrræði er eitt af vinnumarkaðsúrræðum stofnunarinnar.  
Kynningarfundir ða haldnir víðsvegar á landinu í fjarfundabúnaði. Á þeim verða styrkmöguleikar atvinnumála kvenna og þróun eigin viðskiptahugmyndar kynnt auk þess sem stutt námskeið verður um útfyllingu styrkumsóknar. Fulltrúar frá Impru og atvinnuþróunarfélögum munu síðan kynna sína þjónustu.

Kynningarfundur verður haldinn hjá Þekkingarneti Austurlands, Nýheimum Litlubrú 2, Höfn Hornafirði föstudaginn 29.janúar kl.09:00-11.00 í stofu 207 í FAS.

Dagskrá fundarins:

Kynning á styrkjum til atvinnumála kvenna- Ásdís Guðmundsdóttir

Kynning á þróun eigin viðskiptahugmyndar – Vinnumálastofnun Norðurlands eystra.

Örnámskeið í gerð umsókna – Ásdís Guðmundsdóttir

Kynning á þjónustu Impru – Ari Þ. Þorsteinsson

Allar konur velkomnar !

Sótt er um styrki á vefsvæðinu http://www.atvinnumalkvenna.is/ á rafrænum umsóknareyðublöðum sem þar er að finna.

Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar má ennfremur finna á heimasíðunni.

Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins, Ásdís Guðmundsdóttir, í síma 582-4914 eða í netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica