Janúar
Hornafjarðarfljót
Hornafjarðarfljót
Brúin yfir Hornafjarðarfljót.

22.01.2010 Janúar

Bændur ósáttir við að leggja sauðfjárveikivarnarlínuna niður.

Bloggsíða Hjalta Þórs

Starfsmenn Matvælastofnunar (MAST) héldu fund í gær á Smyrlabjörgum þar sem þeir uppfræddu um sauðfjárveikivarnir og færðu rök fyrir því að fella sauðfjárveikivarnarlínu um Hornafjarðarfljót niður. Fundurinn var haldinn að frumkvæði bænda en þeir hafa verið ósáttir bæði við málsmeðferðina og þá niðurstöðu stofnunar og landbúnaðarráðuneytis að leggja línuna niður.  Í sumar var safnað undirskriftum frá öllum bæjum í sýslunni þar sem áhersla var lögð á að sauðfjárveikivarnarlínunni um Hornafjarðarfljót væri viðhaldið.

Eðlilegt hefði verið að þessi fundur hefði átt sér stað í aðdraganda breytinga en ekki í kjölfar þeirra. Það viðurkenndu þeir og einnig að óheppilegt hefði verið að senda út bréf til sveitarfélaga í maí mánuði til að leita eftir sjónarmiðum þeirra.  Á þeim tíma ársins er ómögulegt að eiga samráð við sauðfjárbændum sem eru í önnum í sauðburði.   Á fundinum skýrðist margt og m.a. að þrátt fyrir að Hornafjarðarfljót hefðu ekki breytt farvegi sínum hefði MAST lagt til að lína yrði aflögð.  Dæmi var tekið af Jökulsá á Sólheimasandi þar sem lagt var til að leggja línuna niður þar sem MAST þótti ekki fagleg rök liggja að baki því að viðhalda henni.  Grundvallast afstaða stofnunarinnar á að sömu sauðfjársjúkdómar finnist beggja vegna við hina gömlu línu.  Bent var á að sveitarfélög og samtök bænda hefðu ýmiss úrræði til að sporna gegn flutningum yfir hinar gömlu línur ef vilji er til þess.  Ég tel ástæðu til að leita eftir viðhorfi bænda til þess að setja slík ákvæði, til dæmis í samþykkt um búfjárhald.  Slíkar samþykktir ganga samt augljóslega ekki eins langt og sauðfjárveikivarnarlína.

Bændur eru augljóslega mjög ósáttir við þá niðurstöðu að leggja línuna niður. Undirskriftir hafa borist frá nær öllum bæjum í sýslunni og í lok fundarins í gær var samþykkt ályktun um að skora á stjórnvöld að viðhalda varnarlínunni, með 22 atkvæðum gegn 2.

- Blogsíða Hjalta Þórs

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica