Janúar
Kærleikstrefillinn
Kærleikstrefillinn
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

19.01.2010 Janúar

Athafnasamasta sveitarfélagið á Íslandi

Síðastliðinn föstudag afhentu Andri Heiðar Kristinsson hjá Innovit og Þórhildur Birgisdóttir framkvæmdarstjóri Athafnaviku á Íslandi sveitarfélaginu Hornafirði viðurkenningu fyrir að vera athafnasamasta sveitarfélagið á Íslandi.  Metfjöldi viðburða var skráður hér eða 67 sem er um helmingur viðburða á landsvísu. Einnig áttu Hornfirðingar flestar athafnir skráðar á athafnateygjunni eða alls 91 athafnir.  Björk Pálsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn leiddi verkefnið á Höfn. Hún telur ástæðu fyrir svo góðum árangri hér á Höfn fyrst og fremst vera þá að við gripum boltann og settum á fót hér undirbúningsnefnd. Í nefndinni voru auk Bjarkar,  Nína hjá Þekkingarneti Austurlands, Grétar hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, Guðlaug hjá Menningarmiðstöð, Eiríkur hjá Grunnskólanum, Sandra hjá Háskólasetrinu og Hildur hjá FAS. Markmið nefndarinnar var að smita athafnasemi út í samfélagið með sem minnstum kostnaði. Skipti nefndin með sér verkum og hver og einn átti að hafa samband við sinn markhóp. Þarna skapaðist tækifæri fyrir íbúa að hugsa um eitthvað annað en krepputal og einnig tækifæri til að auglýsa Hornafjörð. Svo eru Hornfirðingar mjög athafnasamir og  miklir frumkvöðlar svo það þurfti ekki mikið til að hvetja menn til þátttöku í svona skemmtilegri viku.  Í athafnaviku gátu líka félagasamtök og fyrirtæki auglýst sig og sína starfsemi á ódýran hátt og voru margir sem nýttu sér það þó að félagasamtök hafi verið duglegust. Það var líka mikið líf  í Nýheimum þar sem prjónaður var kærleikstrefill og málað málverk undir dyggri leiðsögn Guðrúnar Ingólfsdóttur. Vill nefndin koma á framfæri þökkum til hennar fyrir gott framtak til að gera vikuna skemmtilegri og einnig til allra þeirra sem tóku þátt í vikunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica