¨ Kraftlyftingamót¨ Sindra í Sporthöllinni
Kraftlyftingar eru kraftaíþrótt þar sem keppt er í kraftlyftingahnébeygju (hnébeygju), bekkpressu og réttstöðulyftu og ræður samanlagður þyngdaárangur keppnisröð keppenda. Þá telst það einnig til kraftlyftinga þegar keppt er í einstakri sérgrein þeirra á landsmóti eða alþjóðlegu móti.
Sporthöllin hélt sitt fyrsta kraftlyftingamót 23.des.2009. Staðið var að þessu einsog á alvöru móti og voru Ingi Stefán og Sævar Guðmundsson dómarar. Farið var vel yfir keppnisreglur og hvernig þetta gengur fyrir sig á alvöru móti. Fimm hraustir einstaklingar frá 18-27 ára tóku þátt og var mikið kapp í mönnum. Keppt var í hnébeygju,bekkpressu og réttstöðulyftu, keppendur voru ekki í neinum sérstökum þyngdarflokki og kepptu því allir innbyrðis. Keppendur voru fjórir og stóðu þeir sig mjög vel. Vigfús Dan gerði sér lítið fyrir og reif upp 250 kg í réttstöðulyftu, 150 kg í bekk og 220 kg í hnébeygju. Kristján Helgi sem er ekki nema 19 ára lét Fúsa ekkert eftir og reif upp 220 kg réttstöðulyftu, 125 kg í bekk og 210 kg. í hnébeygju sem er frábær árangur miðað við hvað kappinn er léttur. Ragnar og Jón Snorri voru ekki langt á eftir þeim og rifu upp 210 kg. í réttstöðulyftu sem er ótrúlega góður árangur miðað við að þessir drengir eru nýbyrjaðir að æfa þessar greinar. Björn Ármann tók svo 155 kg í réttstöðulyftunni sem er hrikalega gott. Jón Snorri tók 115 kg í bekknum sem nokkuð gott.
Samanlögð þyngd hjá þeim var þessi:
Björn Ármann 235 kg
Ragnar Ingi 450 kg
Jón Snorri 475
Kristján Helgi 555 kg
Fúsi Dan 620 kg
Allir fengu þeir verðlaun frá Sporthöllinni fyrir þátttökuna og myndaðist skemmtileg stemmning á mótinu sem kemur m.a fram á ljósmyndum sem teknar voru.




Skrifa athugasemd