Janúar
Sigurliðið Puulsa
Sigurliðið Puulsa

15.01.2010 Janúar

FAS vann landskeppnina í olíuleit

Það hefur verið mikið líf og fjör í stofu 203 í FAS sl. daga en þar voru samankomnir 20 krakkar sem tóku þátt í tölvuleiknum Oilsim. Þegar leiknum lauk var það liðið Puulsa sem stóð uppi sem sigurvegari. Í öðru sæti var lið  frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og í þriðja sæti var liðið Mjaldur frá FAS. Lesa má nánar um úrslitin í keppninni hér.
Vinningsliðið skipa þeir Jóhannes Óðinsson, Ottó Marvin Gunnarsson og Sigfinnur Björnsson. Með góðri samvinnu og ráðdeild náðu þeir fljótlega forystu í leiknum og héldu henni allt til enda. Sigur í landskeppninni gefur þátttökurétt í lokakeppninni sem fer fram í London þann 30. janúar næst komandi. Til hamingju strákar og gangi ykkur vel í keppninni ytra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica