Olíuleit enn á ný
Í morgun hófst landskeppni í tölvuleiknum Oilsim. Að þessu sinni taka þátt í leiknum vel á fimmta tug nemenda í tólf liðum. Sex lið koma frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og sex lið frá FAS og hafa aldrei áður jafn margir tekið þátt á Íslandi. Leikurinn í dag er þó aðeins æfingaleikur en á morgun er aðalkeppnisdagurinn.
Meðal liðanna nú eru núverandi heimsmeistarar Flipptuðruskransararnir sem gerðu garðinn frægan á síðasta ári. Að sjálfsögðu ætla þeir að reyna að verja heimsmeistaratitil sinn. Til mikils er að vinna. Það lið sem vinnur landskeppnina á Íslandi öðlast þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fer fram í London síðustu helgina í janúar.





Skrifa athugasemd