Óvissa um framtíð Sporthallarinnar
Sporthöllin hefur verið á söluskrá síðan 2008 og nú er aðili utan Hafnar að bjóða í öll tækin í húsinu svo rekstri verðu sjálfhætt. Við sem nú rekum Sporthöllina höfum ekki hug á að ganga inn í tækjakaupin eða að reisa nýja stöð. Nú er lag fyrir bæjarfélagið að opna stöð hér og jafnvel að sameina rekstur sjúkraþjálfara og líkamsræktar undir einu þaki. Leigja síðan út reksturinn. Okkur hefur gengið mjög vel að reka líkamsræktarstöðina eins og þeir vita sem stunda hjá okkur íþróttir. En í dag eru hvorki meira né minna en 20% af íbúum á aldrinum 15-64 ára sem stunda hreyfingu í Sporthöllini. Því spyrja sig eflaust margir hvers vegna við sem rekum stöðina í dag kaupum ekki, það er einfallt, markaðurinn er of lítill eða um 1400 manns á aldrinum 15-64 ára. Í dag stendur stöðin undir rekstrakostnaði en við höfum rekið stöðina í ungmennafélagsanda, sem sagt þjálfarar og rekstraraðilar hafa ekki fengið nein laun. Það er takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja sjálfboðavinnu lengi á fólk og ef við bætum launum við reksturinn þá er ekki rekstrargrundvöllur lengur. Stöð sem þessi er nauðsynleg í hvert bæjarfélag og nágrannar horfa öfundaraugum til okkar hvað hér er boðin mikil þjónusta. Með lokun hér fer mikið forvarnargildi, félög og einstaklingar missa aðstöðu sína til að rækta líkama og sál. Við vitum að hreyfing eins og er boði hér upp á í sporthöllinni í jákvæðu og skemmtilegu umhverfi hefur:
- Forvarnargildi, þeir sem þjálfa að einhverju marki hugsa betur um heilsusamlegt líferni og láta oft drykkju og reykingar um lönd og leið.
- Andleg líðan batnar. Þeir sem stunda reglubundna þjálfun líður betur á sálinni og einangrast síður heima vegna t.d. geðsjúkdóma markskonar.
- Betri bæjarfélag. Við viljum fá fleira fólk á staðinn og er líkamsrækt ein af mörgum gulrótum til að laða fólk að eins og bæjarfélagið hefur t.d. auglýst í atvinnuauglýsingum sínum.
- Atvinnuskapandi. Nú þegar eru tveir starfsmenn á launaskrá ( en ættu að vera fimm eins og við stefndum á.)
- Betri nýting á rekstri þegar margir einyrkjar taka sig saman eins og við höfum gert hér í Sporthöllinni: snyrtifræðingur, kírópraktík, nuddara og einkaþjálfun svo eitthvað sé nefnt.
Látum þessa upptalningu nægja, allir sem eitthvern áhuga hafa á betri heilsu og hreyfingu vita hvað stöð sem þessi hefur að segja fyrir okkur öll. Við sem hér vinnum munum virkilega loka dyrunum með trega og söknuði því við stöllur, sem erum með frábært fólk allt í kringum okkur , vorum loksins farnar að sjá barnið okkar dafna og vaxa í það sem okkur langaði að sjá. Við hvetjum því bæjarfélagið eindregið að hugsa stór og alvarlega um þá stöðu sem hér skapast þegar og ef stöðin lokar. Ef tækin seljast ekki í dag gæti það gerst á morgun því mikil eftirspurn er eftir tækjum og vitum við það með vissu þar sem við höfum sjálfar verið að leita að tækjum til kaupa. Munum að þegar einar dyr lokast opnast aðrar og kannski er tækifærið nú að láta alla sjá hversu gott er að búa í Hornafirði og hér sé rekin fjölskyldustefna í bæjarfélaginu og gróska eins og alltaf á Höfn.
Sigrún og Sandra.




Skrifa athugasemd