Janúar
Spurningakeppnin Gettu betur farin af stað
FAS keppir annað kvöld
Enn og aftur er spurningakeppnin "Gettu betur" farin af stað og að sjálfsögðu tekur FAS þátt. Lið FAS að þessu sinni er skipað þeim Birni Ármanni Jónssyni, Einari Birni Halldórssyni og Frey Sigurðarsyni. Liðstjóri og varamaður er Ragnar Ingi Jóhannesson.
Strákarnir hafa hist nokkrum sinnum undanfarið til að undirbúa sig og eru nú tilbúnir í slaginn.
Í fyrstu umferð mætir lið FAS liði Menntaskólans að Laugarvatni og verður sú viðureign háð annað kvöld, 13. jan., klukkan átta. Okkar keppendur verða í salnum í Nýheimum og hvetjum við alla til að mæta og styðja við bakið á okkar liði.
Áfram FAS !





Skrifa athugasemd