Janúar
Skólastarf í FAS komið á fulla ferð
Nú er skólastarf vorannarinnar í FAS komið á fulla ferð. Nemendur eru á fullu að skipuleggja nám sitt. Sumir bæta við sig áföngum og aðrir vilja breyta fyrri áætlunum. Frestur til breytinga rennur út á mánudag 11. janúar.
Það má svo sannarlega segja að margt spennandi bíði á vorönninni. Í næstu viku er spurningakeppnin Gettu betur og þá á líka að leita að oliu í tölvuleiknum OILSIM. Í febrúar verður opin vika og í mars eru fyrirhuguð ferðalög nemenda til Póllands og Þýskalands.




Skrifa athugasemd