Janúar
Gunnar Baldvinsson
Gunnar Baldvinsson
Gunnar tekur á móti gjöf sem var Saga Hafnar. (mynd STH)

06.01.2010 Janúar

Gunnar Baldvinsson lætur af störfum

Um áramótin lét Gunnar Baldvinsson af störfum hjá félaginu vegna aldurs. Gunnar hefur starfað nánast óslitið hjá félaginu og forverum þess frá byrjun árs 1958 eða í rúmlega hálfa öld. Mestan hluta þessa tíma hefur Gunnar starfað við saltfiskvinnslu. Gunnar hefur unnið einstaklega óeigingjarnt starf, sjaldan vantað í vinnu og ekki var óalgengt að tvo til þrjá starfsmenn þyrfti til leysa hans verk þá sjaldan hann tók sér frí. Fróðlegt væri að reikna hve mörg þúsund tonn (eða tugi þúsunda tonna!) af saltfiski Gunnar hefur handleikið á starfsferlinum, en það verður þó látið vera á þessum vettvangi.

Við þessi tímamót var Gunnari færð Saga Hafnar. Gunnari voru þökkuð vel unnin störf um leið og óskað velfarnaðar.

www.sth.is 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica