Fjarskiptabúnaður eyðilagðist í óveðrinu um helgina
Fjarskiptamastur sem stendur á Hestgerðishnútu sem er á Borgarhafnarfjalli í Suðursveit féll í óveðrinu um helgina með þeim afleiðingum að húsið sem hýsir tækjabúnaðinn lagðist á hliðina. Viðgerðarmenn gerðu tilraun til að komast á fjallið á laugardag en urðu frá að hverfa vegna veðurofsans. Í gær þegar þeir komust upp á fjallið þá blasti við þeim eyðileggingin eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Talið er líklegast að eitt stagið í mastrinu hafi slitnað með þeim afleiðingum að það fellur og strengirnir sem liggja í skúrinn hafi sett hann á hliðina í fallinu.
Mastrið og húsið sem reist voru fyrir um ári síðan með þeim tilgangi að þjóna skipum á hafi úti, Mýrum, Suðursveit og Öræfum er í eigu Neyðarlínunnar 112 og hýsir Tetrakerfið ásamt búnaði frá Flugmálastjórn, 3G GSM kerfum frá Vodafone og Símanum. Einnig er þar nýr endurvarpi Bylgjunnar 103,9. Mastrið er talið ónýtt ásamt eitthvað af loftnetum sem í því voru en fjarskiptahúsið virðist ekki mikið skemmt og verður lagað. Farið verður upp í fjall í dag og reynt að gera einhverjar bráðabirgðaviðgerð á meðan beðið er eftir nýju mastri.





Skrifa athugasemd