Desember
Humarsoð Kokksins
Humarsoð Kokksins

18.12.2009 Desember

Lagaðu hina fullkomnu humarsúpu

Með því að nota Humarsoð Kokksins getur þú búið til ljúffenga humarsúpu á um 10 mínútum.

Það getur tekið mjög langan tíma að gera góða humarsúpu. Humarsoð tekur venjulega marga klukkutíma að útbúa. Með því að nota fyrsta og eina handgerða humarsoðið sem framleitt er á Íslandi, getur þú lagað þína eigin ljúffengu humarsúpu á um tíu mínútum.

Jón Sölvi Ólafsson kokkur, hefur útbúið hágæðahumarsoð sem inniheldur ferskar humarskeljar og er án rotvarnar- og annarra aukaefna. Það sem þarf að bæta við er rjóma, hvítvíni og koníakslögg. Einnig má bæta humarhölum í súpuna.

Humarinn í soðinu kemur frá Höfn, humarhöfuðstað Íslands. Jón Sölvi kokkur útbýr humarsoðið sjálfur, algerlega frá grunni og er þetta sama soðið og hann notar í humarsúpuna sína vinsælu sem seld hefur verið um árabil á veitingastað hans á Höfn. Núna er soðið fáanlegt fyrir hvern sem er.

„Ég vil auðvelda fólki að gera ljúffengan mat á einfaldan hátt. Þess vegna fór ég að framleiða þessa vöru til heimanota,“ segir Jón Sölvi.

Humarsoð Kokksins er ómissandi þegar þú vilt elda gómsæta humarsúpu á fljótlegan og einfaldan hátt. Humarsoð Kokksins fullkomnar humarsúpuna þína.

Humarsoð Kokksins fæst í eftirfarandi verslunum í Reykjavík: Melabúðin, Nóatún, Frú Lauga, Búrið og Fjarðarkaup. Á Höfn: Nettó

Humarsoð Kokksins er úr samstarfi við Matís matis.is/ sem selur heildstæða ráðgjöf og aðgang að vöruþróunaraðstöðu til að umbreyta hugmyndum yfir í gæðamatvæl.

 

Humarsúpa Kokksins (fyrir 3-4)

1 box humarsoð

Koníakslögg

0,5 dL hvítvín

1 dL vatn

3 dL rjómi

Pipar & salt

 

 

Látið sjóða vel og þykkið eftir smekk. Bætið um 150g af skelflettum humri út í og látið sjóða í 2-3 mínútur til viðbótar.

 



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica