Desember
Grétar klár í slaginn
Grétar klár í slaginn
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

17.12.2009 Desember

Dagur móður jarðar í ríki Vatnajökuls 12. des. 2009

 

Slow Food samtökin héldu upp á dag móður jarðar víðsvegar um heiminn í síðustu viku en tilefni  þess var að samtökin áttu 20 ára afmæli.  Slow Food samtökin eru hreyfing fólks  hafa þau markmið að leiðarljósi  að auka meðvitund fólks um mikilvægi matarmenningar, þekkingar, hefðar og landfræðilegs uppruna matvæla. Einkunnarorð samtakanna eru góður, hreinn og sanngjarn, og er þar átt við að maturinn eigi að bragðast vel, hann eigi að vera laus við aukaefni og sem náttúrulegastur, og sanngjarn á þann hátt að sá sem framleiðir matinn fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og afurðir.  

Slow FoodDeild innan Slow Food hreyfingarinnar var stofnuð í Ríki Vatnajökuls í haust og eru nú skráðir 13 meðlimir. Félagar deildarinnar hér ákváðu að halda upp á dag móður jarðar eins og víða annars staðar í heiminum til að koma saman og gleðjast yfir mat og drykk en eigendur Humarhafnarinnar lánuðu veitingastaðinn til samtakanna og fengu gestakokkinn og Slow Food manninn Grétar Vilbergsson til að elda hreindýrabuff með meiru. Allur ágóði af  kvöldverðinum rennur til samtakanna hér á staðnum og fer í að undirbúa ferð til Torino á Ítalíu í október næsta haust á eina stærstu matvælasýningu heims en þar safnast saman framleiðendur frá 180 löndum til að sýna vörur sínar.  Stefnt er að því að Slow Food deildin Ríki Vatnajökuls verði með bás á sýningunni 2010 til að kynna okkur sem matvæla-  og ferðamannahérað. Allir geta gerst meðlimir í Slow Food samtökunum og þeir sem hafa áhuga á starfinu, fá frekari upplýsingar eða vilja skrá sig í samtökin geta farið inn á heimasíðuna slowfood.com/

Slow Food deildin í Ríki Vatnajökuls.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica