Heilsan í forgangi yfir hátíðarnar
Í Sporthöllinni er mikið um að vera og hafa þær stöllur Sigrún, Sandra og Kolla opnað heimasíðuna rikivatnajokuls.is/sporthollin. Þar er alltaf dagréttar upplýsingar og tilkynningar auk fróðleiks. Mikil efling hefur verið í Sporthöllinni í haust og auk allra sem þjálfa þar á eigin vegum með dyggri aðstoð Kolbrúnar og annarra kennara, þá stunda nemendur FAS líkamsrækt í stöðinni, nokkrir úr Dagþjónustunni, Starfsendurhæfing Austurlands, tekið er á móti fólki sem er að koma frá Reykjalundi, Hveragerði og Norðfirði og fótboltakempur úr Sindra koma í þrek! Nýlega var haldinn fjölskyldudagur og salsanámskeið og verða ýmsar uppákomur í boði á nýju ári.
Nú er áskorun í gangi sem gengur vel, en 14 manns skráðir og er hugur í öllum! Gufan verður opin í desember og verður boðið upp á sérstaka jólatíma þar sem allir þjálfarar verða með hörkutíma í 90 mín.
Fyrir þá sem eru að koma heim um jólin verður tilboð á korti fyrir tímabilið 15. desember til 8. janúar á 7000 kr.
Eftir áramót ætlar Gunnar Ingi að vera með ketilbjöllunámskeið og stefnt er á að bjóða upp á suðræna salsaleikfimi á vorönninni. Verið er að vinna í því að fá ný tæki í Sporthöllina t.d. róðrarvél og lóð.
Á nýju ári ætlar Sporthöllin að skora á fyrirtæki að skora á hvort annað og fara í keppni hverjir eru duglegastir að mæta. Verða vegleg verðlaun í boði.
Verður opið í Sporthöllinni yfir jól og áramót nema helgidagana, sjá tímatöfluna að neðan, og eru þau orkuboltarnir í Sporthöllinni í óða önn að plana næstu önn!
Opnunartími yfir jól og áramót:
Þorláksmessa : 8-19:00
Aðfangadagur : 9-12:00
Lokað : jóladag og annan í jólum.
Gamlársdagur: 9-12:00
Nýársdagur : lokað
Laugardaginn 2 janúar; Lokað




Skrifa athugasemd