Desember
Nettó og Kiwanis
Nettó og Kiwanis
Pálmi Guðmundsson frá Nettó, forseti Kiwanisklúbbsins Óss Ásgeir Ásgeirsson og gjaldkeri Kiwanisklúbbsins Miralem Haseta við afhendingua.

12.12.2009 Desember

Kiwanisklúbburinn Ós og Nettó styrkja Félagasamtök Hornafjarðar

Félagasamtökum Hornafjarðar hefur borist 270 þúsund kr. gjafabréf á matarúttekt í Nettó. Gefendurnir eru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 210 þús. og Nettó bætti þar við 60 þúsund.

Forseti Kiwanisklúbbsins Óss Ásgeir Ásgeirsson ásamt gjaldkeranum Miralem Haseta afhenda svo Jóni  Kristjáni félagsmálafulltrúa gjafabréfin með von um að þessu verði skipt milli nokkurra heimila  og verði kærkominn glaðningur fyrir jólin því í okkar litla bæjarfélagi  eru vissulega til heimili  sem eru hjálpar þurfi.

Ein af mörgum fjáröflunarleiðum Kiwanisklúbbsins er sala á jólatrjám og er þessi gjöf ágóði hennar. Einnig selja þeir úrvals lakkrískonfekt sem framleitt er hjá sælgætisgerðinni Freyju hér á Höfn. Jólatrén sem seld eru hér eru úr skógræktinni í Haukafelli nema Norðmannsþinurinn sem fluttur er inn frá Danmörku.

Kiwanisfélagarnir í Ósi óska öllum A-Skaftfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica