Desember
Vetrarkvöld á Höfn
Vetrarkvöld á Höfn

07.12.2009 Desember

Samfélagssjóður Hornafjarðar

 

Félagasamtök á Hornafirði hafa tekið höndum saman um að setja á fót söfnunarreikning fyrir einstaklinga og fjölskyldur í fjárhagserfiðleikum. Ljóst er að öll höfum við minna ráðstöfunarfé á milli handana í dag en áður og líklega munu ráðstöfunartekjur minnka áfram næstu mánuði og misseri en sjóðnum er ætlað að styðja við þá þjóðfélagshópa sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Þau samtök sem standa að stofnun sjóðsins eru Hafnarsöfnuður, Lionsklúbbur Hornafjarðar og Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands (RKÍ), en hafi önnur félagasamtök áhuga á að koma að sjóðnum á einhvern hátt er það að sjálfsögðu velkomið og geta forsvarsmenn sett sig í samband við Ásgerði Gylfadóttur, gjaldkera RKÍ á Hornafirði sé áhugi á þáttöku fyrir hendi.  Sjóður þessi er ennfremur hugsaður sem vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sveitarfélaginu sem vilja láta gott af sér leiða og styrkja nærsamfélagið. Samdar verða úthlutunarreglur vegna aðstoðarinnar og fyllsta trúnaðar verður gætt vegna úthlutunarinnar sem verður eingöngu í höndum RKÍ á Hornafirði án samráðs við þá sem styrkja verkefnið. Úthlutun hefst á morgun, 8.desember,  fyrir jólin en fyrirhugað er að halda sjóðnum virkum allt árið.
Fyrir þá sem vilja leggja sjóðnum lið er reikningsnúmerið 0172-05-60921 kt. 620780-2439 en nánari upplýsingar veitir Ásgerður Gylfadóttir í síma 896 6167.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica