Desember
Frá undirritun samningsins
Frá undirritun samningsins

07.12.2009 Desember

Samningur undirritaður um áframhald byggingu reiðskemmu við Stekkhól

Haldinn 1. desember í Stekkhól

 

Á fundinum var undirritaður samningur við sveitarfélagið Hornafjörð um áframhald byggingu reiðskemmu við Stekkhól. Á haustdögum hófust viðræður við sveitarfélagið um aðstoð við fokheldi reiðhallar. Hafa þær viðræður gengið vel, enda auðfundinn velvilji í garð Hestamannafélagsins. Sveitarfélagið leggur fram fjármagn og stjórn verksins en Hestamannafélagið leggur fram vinnu eftir óskum byggingarstjóra. Byggingarstjóri verður Birgir Árnason. Sveitarfélagið semur við járnsmiði og aðra sem koma að verkinu. Nú verður brátt allt sett á fullt til að gera skemmuna fokhelda.
Saga byggingar reiðhallarinnar hefur tekið allt of langan tíma. Samningur við verktaka undirritaður í apríl 2007, grindin reist í janúar 2008 um mitt ár 2008 var ljóst að verktaki mundi ekki standa við gerða samninga. Félagið lauk við að flytja klæðningu utan á húsið og er klæðningin öll komin á staðinn.
 
Sex nýjir félagar gengu í Hornfirðing  á fundinum. Talsverð breyting var á stjórn, úr stjórninni gengu Eydís Benediktsdóttir ritari, Ásthildur Gísladóttir og Árnína Guðjónsdóttir. Nýja stjórn skipa  Bryndís Hólmarsdóttir formaður,  Þorbjörg Gunnarsdóttir gjaldkeri, Pálmi Guðmundsson ritari, Kristján V. Björgvinsson meðstjórnandi og Jón Finnsson meðstjórnandi. Varamenn: Ingólfur Vopni Ingólfsson og Sigrún Harpa Baldursdóttir.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica