Desember
Jón í Slökkvitækjaþjónustunni
Jón í Slökkvitækjaþjónustunni
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

04.12.2009 Desember

Brunavarnir heimilisins

Er búið að fara yfir reykskynjarana og slökkvitækin?

 

Er það ekki einmitt núna sem hyggja þarf að brunavörnum heimilisins?
Hvað líður slökkvitækjunum, hafa þau verið yfirfarin einu sinni á ári  eins og vera ber?
Hvað með reykskynjarana eru þeir í lagi, hefur verið skipt um rafhlöður á réttum tíma ?                                                                                                                      

Eru slökkvitækin af réttri gerð?
Eru reykskynjararnir af þeirri gerð sem henta best á hverjum stað?
Eru reykskynjarar í herbergjunum hjá krökkunum, þar sem allt er orðið fullt af allskonar rafmagnstækjum? 

Þetta eru þær spurningar sem umráðamaður heimilisins verður að svara með jái, ef hann vill með góðri samvisku geta sagt að hann eða hún hafi gert það sem gera ber til þess að tryggja sem best öryggi heimilisfólks á sínu heimili. Ekki minna atriði er það fyrir fólk að gera sér grein fyrir því að þær brunavarnir sem nú eru á heimilinu eru ef til vill ekki þær bestu sem völ er á.

Hér á Höfn rekur Jón Stefán Friðriksson Slökkvitækjaþjónustu og hann er rétti maðurinn til þess að svara öllum spurningum varðandi eldvarnir á heimilum. Slökkvitækjaþjónustan er í húsi slökkvistöðvarinnar og þar er hægt að kaupa allar gerðir slökkvitækja og reykskynjara og annan þann búnað sem til þarf, til þess að tryggja sem best heimilið gegn eldsvoða. Fyrsta skrefið er að hringja í Jón í síma  894-1398 og fá hann til þess að líta á vettvang eða upplýsa viðkomandi um hvað betur má fara í brunavörnum heimilisins. Ekki skaðaði heldur að grípa slökkvitækið ef það hefur ekki verið yfirfarið á réttum tíma og gera sér ferð í Slökkvitækjaþjónustuna láta yfirfara tækið og ræða málið við Jón.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica