Desember
Réttir úr Ríki Vatnajökuls
Réttir úr Ríki Vatnajökuls
Mynd 2 af 3
1 2 3

03.12.2009 Desember

Réttir úr Ríki Vatnajökuls komin út

 

Matreiðslubókin Réttir úr Ríki Vatnajökuls er komin í sölu.  Í bókinni notar höfundur hennar, Halldór Halldórsson eingöngu Hornfirskt hráefni sem aðalhráefni í hverja uppskrift. Bókina prýða myndir sem Hornfirskir áhugaljósmyndarar hafa tekið bæði af réttunum í bókinni sem og náttúrunni í kring. Skemmtilegir textar um hráefnið eru á undan hverri uppskrift og einnig er matvælakort í bókinni ásamt því að finna má framleiðendalista til þess að geta nálgast hráefnið.

Bókin er til sölu á Hótel Höfn og verður einnig til sölu á Jólamarkaðnum í Nýheimum og Miðbæ núna á laugardaginn. Því miður er ekki hægt að taka við greiðslukortum.

Bókin er einnig til sölu í Reykjavík hjá bændamarkaði Frú Laugu, Laugalæk, en nánari upplýsingar um Frú Laugu er á frulauga.is/

Einnig er hægt að fá bókina senda út á land með því að senda tölvupóst á halhal@simnet.is. Nánari upplýsingar eru í síma 692-5624.

Bókin kostar 3200 krónur en afsláttur er veittur ef keyptar eru 5 eða fleiri bækur.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica