Sveitarómantík á Smyrlabjörgum
Tími jólahlaðborðanna sívinsælu stendur nú sem hæst og er því tilvalið að fræðast aðeins um hvað er þar í boði. Vefurinn hafði samband við Laufeyju Helgadóttur hótelstýru á Smyrlabjörgum og innti hana frétta af jólahlaðborðum hjá henni.
,,Við verðum með jólahlaðborð laugard. 5. desember. Þetta er hefðbundið jóla-villibráðarhlaðborð með nokkrum tugum rétta og ætlum við að brjóta aðeins upp með forréttina sem bornir verða fram öðruvísi en verið hefur. Hráefnið sem við notum er nánast allt héðan úr héraðinu. Við leggjum allt upp úr að fólk geti átt hér ánægjulega kvöldstund, notið góðra veitinga og hlustað á fallegu jólalögin sem leikin verða á lægri nótunum þannig að fólk geti rætt saman. Fyrir þá sem vilja almennilega afslöppun er í boði gisting á mjög lágu verði ásamt morgunkaffi. Þeir sem vilja geta fengið kaffið eða heitt súkkulaði fært í rúmið''.
Semsagt algjört dekur þar á bæ. Hlaðborðin á Smyrlabjörgum eru víðfræg og að þessu sinni hefur Laufey listakokkinn Jón Sölva með sér við matargerðina. Verð á hlaðborðinu er kr.6.600.
Laufey segir ekki vera ákveðið hvort þau verði með fleiri jólahlaðborð, það fari eftir eftirspurn en það eru mörg slík í boði á svæðinu.





Skrifa athugasemd