Nóvember
Vatn þrýstir sér upp undan ísnum
Vatn þrýstir sér upp undan ísnum
Vatn þrýstir sér upp undan ísnum svo það minnir helst á sjóðandi hver. Mynd: Guðmundur Ögmundsson
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

27.11.2009 Nóvember

Örar breytingar við Skeiðarárjökul

 

Eins og mörgum er kunnugt hætti Skeiðará fyrr í sumar að renna um austanverðan Skeiðarársand en brýtur sér þess í stað leið vestur með jökuljaðrinum og fellur í Gígjukvísl. Er því Morsá nú þess heiðurs aðnjótandi að yfir hana er lengsta brú landsins.

Gamla Skeiðará er samt ekki hætt að koma á óvart. Í fyrstu viku nóvember hætti vatn að falla út undan jökli austur við Jökulfell og kemur það vatn nú undan jöklinum tveimur kílómetrum vestar en það áður gerði. Ekki er víst hvað veldur þessu en að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings hjá Veðurstofunni kann það að skýrast af breyttum yfirborðshalla jökulsins. Segir Oddur að sá halli ráði meiru um farveg vatns undir jökli en landslag. Starfsmenn Vatnajöklusþjóðgarðs í Skaftafelli hyggjast fylgjast vel með frekari breytingum við jökulinn í vetur.

 

Þess má geta að niðurstöður sporðamælinga Jöklarannsóknafélagsins liggja nú fyrir. Tveir mælipunktar eru við Skeiðarárjökul norður af Sæluhúsavatni og eru um 1.600 metrar á milli þeirra. Niðurstöðurnar voru athyglisverðar því jökullinn hopaði 86 metra við vestara merkið en gekk fram um 38 metra við það austara. Það er því ekki einfalt að segja til um hvort Skeiðarárjökull hafi gengið fram eða hopað í ár, þó að meðaltal gefi til kynna það síðarnefndara.

Guðmundur Ögmundsson
Vatnajökulsþjóðgarður

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica