Nóvember
Athafnavika á Höfn
Athafnavika á Höfn
Grétar og Ari smella tveimur á Vífil prjónameistara.

24.11.2009 Nóvember

Metfjöldi viðburða á Höfn í athafnaviku

 

Nú er frábærri athafnaviku lokið. Íslendingar voru með 120 viðburði skráða þar af voru Hornfirðingar með 67 viðburði skráða sem er frábær árangur.  Nýsköpunarmiðstöð Íslands er einn af stuðningsaðilum athafnaviku á Íslandi. Hér mynduðum við  undirbúningshópur sem var með það markmið að vekja athygli fyrirtækja og einstaklinga á vikunni það var okkar ákvörðun og tel ég að það hafi skipt sköpum að heimamenn voru sjálfir að hvetja. Í undirbúningshópnum voru Björk Pálsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem leiddi verkefnið, Eiríkur Hansson hjá Grunnskóla Hornafjarðar,Guðlaug Pétursdóttir hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar,Grétar Már Þorkelsson hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, Hildur Þórsdóttir hjá Framhaldskóla Austur Skaftafellssýslu,Nína Sybil Birgisdóttir hjá Þekkingarneti Austurlands og Sandra Björg Stefánsdóttir hjá Háskólasetrinu á Hornafirði.

Á föstudag var mikið um að vera hádegið í Nýheimum var þétt bókað og meðal viðburða þar var afhending á málverkinu „Bjartsýni“  til Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Hjalti bæjarstjóri tók við verkinu og verður það sett upp í Ráðhúsi þar sem það minnir íbúa á bjartsýni og samstöðu. Málverkið var málað í athafnavikunni en Guðrún Ingólfsdóttir listakona á hugmyndina að þessu verkefni og hélt hún utan um þennan viðburð. Málverkið var svo málað af 73 bæjarbúum á öllum aldri.

Kærleikstrefillinn er nú í Handraðanum en þangað fór hann á sunnudag, við ætlum að hafa hann eitthvað áfram hér í Nýheimum enda afskaplega gott að geta sest niður og prjónað eina umferð af kærleik.

Athafnateygjurnar gengu mjög vel og eru Hornfirðingar með hæsta skor þar eða 91 samanlagðar athafnir á teygjum sem Hjalti Vignisson og  Björk Pálsdóttir voru skráð fyrir.

Með kveðju fyrir hönd undirbúningshóps

Björk Pálsdóttir

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica