Gaman að lifa - hljóðbókaútgáfa
Haustið 2008 stofnuðu þær Bryndís Víglundsdóttir, kennari og Elín Sigurgeirsdóttir, tannlæknir hljóðbókaútgáfuna Gaman að lifa. Markmiðið með útgáfu hljóðbókanna er fyrst og fremst að bjóða gott hlustunarefni, fjölskylduvænar sögur. Ekki hafa allir mikið næði til að setjast með bók til að lesa og gæti verið ánægjulegt að setja disk í spilarann hvort sem er heima eða í bílnum og hlusta á sögu. Hljóðbókaútgáfan Gaman að lifa áformar að gefa út vandaðar hljóðbækur fyrir börn, unglinga og fullorðna. Markmiðið er að bjóða bækur sem fjölskyldan getur haft gaman af að hlusta á saman.
Hægt er að nálgast hljóðbækurnar á vefsíðu þeirra gamanadlifa.is. Diskarnir eru seldir í Handraðanum, einnig er enska útgáfan af Sögur af Munda ( The boy Mundi) seld í Nettó. Hægt verður að nálgast alla diskana á jólamarkaðnum í Nýheimum 5. desember á góðu verði.
Fyrstu bækurnar sem Gaman að lifa gaf út eru Sögur af Munda, Benni og ég og Jólabaðið. Nú hefur Gaman að lifa gefið út tuttugu sögur af dýralækninum snjalla, James Herriot. Sögurnar heita einu nafni Blessuð skepnan.
James Herriot (1916-1995 ) var alinn upp í Glasgow í Skotlandi þar sem foreldrar hans bjuggu. Hann starfaði sem dýralæknir í Yorkshire, Englandi alla starfsævi sína. Hann fór ekki að skrifa að ráði fyrr en hann var orðinn fimmtugur en hætti þó ekki að starfa að dýralækningum. Bækur hans hafa allar orðið metsölubækur.
Gerð hefur verið þáttaröð fyrir sjónvarp byggð á bókum hans og sýndi Ríkissjónvarpið hér nokkra þættina (Dýrin mín stór og smá) fyrir nokkrum árum.
Herriot hafði einstaka hæfileika til að koma auga á margbreytilegar hliðar mannlegs atferlis hvort sem var í samskiptum manna hver við annan eða við aðrar skepnur skaparans. Oftast tókst honum að leysa málin með dugnaði og eðlislægu góðlyndi.
Hljóbókaútgáfan Gaman að lifa hefur nú þegar gefið út tuttugu þætti eftir James Herriot og er von á fleiri með haustinu. Hægt er að fá diskana staka eða 5 saman í gjafaöskju. Við mælum með öskjunum til tækifærisgjafa eða í jólagjöf þegar blessuð jólin koma! Bryndís Víglundsdóttir þýddi þættina og les þá. Frásöguþættir Herriots eru ekki samfelld saga – heldur þættir- og má því segja að hver diskur sé fullgild heild.
Næstu verkefni:
Á næstunni verður gefið út, framhald af sögum Herriots, Blessuð skepnan.
Sagan Í Heiðmörk eftir Robert Lawson er fyrir börn á öllum aldri en einkum hugsuð fyrir börn á aldrinum 6-10 ára. Hún fjallar um daglegt líf smádýranna í Heiðmörk. Fremstur í flokki er hérastrákurinn Groggur sem stingur hundana léttilega af enda stekkur hann hærra og lengra en allir aðrir. Við kynnumst líka pabba hans og mömmu, Arnaldi frænda, Brodda gamla, Möllu moldvörpu, músastráknum Villa og fjölda annarra íbúa Heiðmerkur.
Nornin við Svörtutjörn er verðlaunabók fyrir unglinga eftir Elizabeth Speare, bók frá Bandarríkjunum um atburði sem gerðust um 1700 og er Kata ung stúlka frá Barbados, miðdepill atburðanna.




Skrifa athugasemd