Hornfirsku jólasveinarnir á jólakort
Komin eru á markað ekta hornfirsk jólakort hönnuð af Jóhanni Kristófer Antonssyni 19 ára nema í FAS og eru kortin prentuð í BB prentun og myndveri. Brynjúlfur Brynjólfsson í BB prentun segist hafa rætt við Jóhann sl. sumar um að teikna jólasveina til að hafa á jólakort og nú eru þessir hornfirsku jólasveinar komnir bæði á jólakort og í litabækur, einnig ræddi hann við Guðlaugu Björnsdóttur frænku Jóhanns, sem líka er nemandi í FAS, og bað hana að teikna ,, svona mjúk kort'' og það stóð ekki á því. Þessi kort fást í Handraðanum, hjá BB prentun og einnig eru þau seld í Hafnarfirði og vonandi bætast fleiri sölustaðir við.
Að venju er BB með mikið úrval af gullfallegum jólakortum með myndum frá Hornafirði sem seld eru víða um land. Alls hafa verið prentuð um 60 þúsund kort hjá BB frá því fyrirtækið byrjaði fyrir 7 árum.
Til hamingju með gott framtak bæði hönnuðir og framleiðandi.




Skrifa athugasemd