Nóvember
Á Kárahnjúkavegi
Á Kárahnjúkavegi

22.11.2009 Nóvember

Fréttatilkynning frá Náttúrustofu Austurlands

 

Keyrt var á hreindýrstarf á Háreksstaðavegi nýlega. Það minnir okkur á að framundan er sá tími þegar árekstrar við hreindýr eru algengastir.

 

Keyrt var á hreindýrstarf á Háreksstaðavegi nú um helgina. Það minnir okkur á að framundan er sá tími þegar árekstrar við hreindýr eru algengastir.

Hættan á árekstrum við hreindýr hefur aukist mikið á síðustu árum eins og sjá má á fyrstu mynd. Á annari mynd sést að hættulegustu staðirnir samkvæmt tilkynntum árekstrum hafa verið Kárahnjúkavegur og þjóðvegur 1 um Lón og Nes á Suðausturlandi.

Fjöldi árekstra

1. mynd. Fjöldi hreindýra sem urðu fyrir bílum  frá 1999 til dagsins í dag.

Staðsetningar

 

2.       mynd. Fjöldi ákeyrðra hreindýra eftir stöðum

 

Skammdegið er hættulegasti tími ársins. Eins og sést á 3. mynd verða flest dýr fyrir bílum í nóvember til janúar.

Árekstrar á hreindýr eftir mánuðum

3.       mynd. Árekstrar við hreindýr eftir mánuðum  frá 1999 til dagsins í dag.

 

Náttúrustofa Austurlands  hvetur bílstjóra til að fara gætilega einkum á Kárahnjúkavegi, Háreksstaðavegi, Fagradal, Hamars- og Álftafirði  og í Lóni og Nesjum.

Flestir árekstrar við hreindýr verða í ljósaskiptunum þar sem hálka er á vegum.

Nóvember-janúar  er hættulegasti tími ársins fyrir hreindýr gagnvart ökutækjum.

Vegagerðin hefur sett upp viðvörunarskilti á hættulegustu stöðunum og eru ökumenn hvattir til að sýna sérstaka aðgát þar.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica