Góður dagur til athafna !
Alþjóðleg athafnavika
Dagurinn í dag var ansi góður til athafna og víða um bæinn voru viðburðir skipulagðir. Í hádeginu í dag tók Hjalti Vignisson bæjarstjóri við málverkinu „bjartsýni“ eftir Guðrúnu Ingólfsdóttur og 73 bæjarbúa unga sem gamla. Málverkinu verður fundinn staður í ráðhúsinu þar sem bæjarbúar geta komið og litið á listaverkið sem minnir okkur á að vinna saman og vera bjartsýn. Guðrún Ingólfsdóttir átti hugmyndina að þessu verkefni og sá hún um listamannaþáttinn og veitti leiðsögn. Sveitarfélagið Hornafjörður greiddi efniskostnað og flutning og vil ég þakka báðum aðilum fyrir skemmtilegt og gott framlag til athafnaviku á Höfn. Í hádeginu var Ari með kynningu á Slow food samtökunum, Haukur og Stefán kynntu kiwanishreyfinguna og klúbbinn Ós og Hjalti bæjarstjóri las upp úr bókinni Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir. Slökkvilið Hornafjarðar sýndu tól og tæki fyrir utan miðbæinn, vona að þeir fyrirgefi mér það að ég gleymdi að setja þann viðburð inn á rafræna dagatalið.
Athafnateygjan gengur nokkuð hratt en mér sýnist að teygjurnar okkar Hjalta samanlagt séu með skráða 83 athafnir. Kærleikstrefillinn stækkar ört og nú hafa um 77 aðilar tekið í prjónana , hann verður í Pakkhúsinu á morgun laugardag. Þar verður heimamarkaður, mannamót og margt fleira skemmtilegt. Á sunnudag ætla ég að taka hann með mér í Handraðann á opið hús.
Dagskrá má sjá hér
Bestu kveðjur og góða athafnahelgi
Fyrir hönd undirbúningshóps
Björk Pálsdóttir





Skrifa athugasemd