Nóvember
Farðað og greitt
Farðað og greitt
Mynd 4 af 6
1 2 3 4 5 6

21.11.2009 Nóvember

Stíll 2009

Laugardaginn 21. nóv.  verður haldin hönnunarkeppni félagsmiðstöðva í Vetrargarðinum Smáralind. Stíll er fatahönnunar- förðunar og hárgreiðslukeppni á vegum Samfés. Þar er markmiðið að hvetja ungt fólk til listsköpunar og gefa þeim tækifæri til að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn.

 

Frá því í september var starfandi stílklúbbur í Miðgarði undir leiðsögn Kristrúnar Ýrar Gylfadóttur. Föstudaginn 30. október var svo undankeppni Miðgarðs haldin í Sindrabæ fyrir Stíl 2009. Þemað í ár var endurvinnsla og var því allt fljótandi í dagblöðum, plasti, gömlum efnisbútum og fleira tilfallandi. Þrjú lið tóku þátt og stóðu allir sig með prýði. Það er gaman að sjá hvað ungmennin okkar eru frjó og dugleg.

 

Sigurvegararnir í ár voru þær Þóra Birna, Sædís Harpa Sigríður og Elísa Ösp. Nú halda þær á stóru keppnina og við óskum þeim góðs gengis og efumst ekki um að þær eigi eftir að standa sig mjög vel.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica