Stíll 2009
Laugardaginn 21. nóv. verður haldin hönnunarkeppni félagsmiðstöðva í Vetrargarðinum Smáralind. Stíll er fatahönnunar- förðunar og hárgreiðslukeppni á vegum Samfés. Þar er markmiðið að hvetja ungt fólk til listsköpunar og gefa þeim tækifæri til að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn.
Frá því í september var starfandi stílklúbbur í Miðgarði undir leiðsögn Kristrúnar Ýrar Gylfadóttur. Föstudaginn 30. október var svo undankeppni Miðgarðs haldin í Sindrabæ fyrir Stíl 2009. Þemað í ár var endurvinnsla og var því allt fljótandi í dagblöðum, plasti, gömlum efnisbútum og fleira tilfallandi. Þrjú lið tóku þátt og stóðu allir sig með prýði. Það er gaman að sjá hvað ungmennin okkar eru frjó og dugleg.
Sigurvegararnir í ár voru þær Þóra Birna, Sædís Harpa Sigríður og Elísa Ösp. Nú halda þær á stóru keppnina og við óskum þeim góðs gengis og efumst ekki um að þær eigi eftir að standa sig mjög vel.




Skrifa athugasemd