Nóvember
Öræfingaball á höfuðborgarsvæðinu nóv. 2009
Öræfingaball á höfuðborgarsvæðinu nóv. 2009
Austurhluti sveitarinnar og salsins
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

19.11.2009 Nóvember

Tileinkuðu samkomuna sumardvalarbörnum í Öræfum á síðustu öld

Öræfingar í Skaftfellingafélaginu í Reykjavík efndu til samkomu síðastliðinn laugardag og tileinkuðu hana sumardvalarbörnum í Öræfum á síðustu öld. Einnig voru innfæddir boðaðir og gerðu sumir sér ferð alla leið frá Hornafirði. Mætingin fór fram úr björtustu vonum, því um 200 manns létu sjá sig og ánægja skein af hverju andliti, enda urðu fagnaðarfundir.

Svavar M. Sigurjónsson sýndi gamlar myndir á tjaldi allt kvöldið og ýmis atriði frá liðinni tíð voru rifjuð upp í hljóðnema af skemmtinefndarfólki, sumardvalarbörnum og burtfluttum Öræfingi. Sigrún Axelsdóttir minntist með gleði veru sinnar á Kvískerjum, Jón Karl Snorrason rifjaði upp skondin atvik frá Hnappavöllum, Guðný Valberg gluggaði í gamla dagbók frá Fagurhólsmýrarárum, Jón Ragnarsson var verðugur fulltrúi Hofsness og Óli Schram flutti litríkan pistil fyrir hönd Hofsbarna. Bryndís Jónsdóttir fór fögrum orðum um Svínafell, hvar bæði hún og börn hennar höfðu dvalið og Þorsteinn Jakobsson frá Skaftafelli lýsti sólarhringsferð í barnæsku á jólaball á Hofi. Tónlistaratriði voru inn á milli. Stefán Bjarnason frá Hofi flutti Gestalistann, við texta eftir Halldór Þorsteinsson í Svínafelli. Dóttir Stefáns, Helena Marta, söng tvö lög og Mýrastelpur önnur tvö. Svo söng allur salurinn af og til við undirleik séra Einars Jónssonar sem ungur að árum dvaldi sumur á Kvískerjum.

Í hléi gæddi fólk sér á kaffi, kleinum og flatkökum. Hrefna Magnúsdóttir frá Svínafelli átti heiðurinn að flatkökubakstrinum og að minnsta kosti hundrað kleinum. Hofsstrákar og séra Einar spiluðu fyrir dansi og ýmsir tóku sporið en úthaldið var ekki eins gott og á Hofi fyrr á árum.

- Gunnþóra Gunnarsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica