Nóvember
Athafnavika á Höfn
Athafnavika á Höfn
Góður hópur samankomin í Nýheimum á Athafnavikunni.
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

19.11.2009 Nóvember

Alþjóðleg athafnavika á Höfn

 

Athafnavikan fór vel af stað hérna á Höfn og við erum með 65 atburði skráða sem hlýtur að teljast góður árangur í sveitarfélagi sem telur um 2.100 íbúa.

Kærleikstrefillinn lengist  og lengist og núna áðan voru krakkar úr fimmta bekk Grunnskóla Hornafjarðar að prjóna  þátttakendur í honum eru orðnir rúmlega  fjörutíu. Vinnu við málverkið lýkur í dag og eigum við von á leikskólabörnum frá leikskólanum Krakkakoti til okkar eftir hádegi. Mér skilst að fjöldi þeirra sem höfðu málað í gær væri í kringum fimmtíu manns. Í hádeginu 16. - 18. nóvember bauð Þekkingarnet Austurland upp á  hláturjóga.  Það er ferlega skemmtilegt og losar um uppsafnaða spennu, hláturjógað fer fram í miðrými Nýheima og höfum við sem tókum þátt í því fengið mikla athygli og hláturinn smitað út frá sér.  Ari Þorsteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sýndi myndband frá Noregi þar sem búið var að útbúa litla útgáfu af virkjun sem byggði á þeim kröftum  sem myndast þegar saltvatn mætir fersku vatni eða osmósa. En hér í sýslunni eru góð skilyrði fyrir slíkar virkjanir. Ari hefur einnig verið að gera osmósugjörning með eggjum  hægt er að skoða þau hér í Nýheimum á frumkvöðlaganginum. Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu var með þrautalausn í hádeginu en hún gekk út á það að þátttakendur áttu að koma eggjum á milli staða án þess að nota hendur. Þá var einnig sýndur sjónvarpsþátturinn Handan við Hornið, en það er afrakstur af verkefni sem þrír nemendur framhaldskólans unnu á námskeiðinu Sóknarbraut sem var haldið síðastliðið vor.

Athafnateygjurnar okkar Hjalta ganga nokkuð rösklega manna á milli og ef ég verð vör við að teygjurnar stoppi þá hika ég ekki við að ýta við fólki. Við viljum  að sem flestir bæjarbúar fái tækifæri til að vera með í þessum skemmtilega leik það er líka svo gaman að sjá hvað fólk er að fást við. Hægt er að sjá hvernig teygjurnar ganga um bæinn á http://www.athafnateygjan.is/

Við viljum hvetja íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér vel þá viðburði sem verða í boði og vera dugleg að mæta og taka þátt. Hér er slóðin að viðburðadagatalinu.

http://www.rikivatnajokuls.is/media/vidburdir/athafnavika.pdf  

Með athafnakveðjum fyrir hönd undirbúningshóps

Björk  og Nína

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica