Kraftlyftingafélag Sindra stofnað.
Kraftlyftingadeild Sindra var stofnuð 2 nóvember 2009 til að fólk sem stundar lyftingar hér í Hornafjarðarbæ geti keppt fyrir okkar heimafélag UMF-Sindra. Í stjórn félagsins eru Sævar Guðmundsson formaður, Ingi Stefán Guðmundsson og Kolbrún Björnsdóttir. Það sem þau vilja gera með stofnun þessa félags er að stuðla að heilbrigðri og uppbyggjandi styrktarþjálfun. Með þessu vonast þau til að fá styrk til þess að eignast lögleg keppnislóð sem muni nýtast öllum þeim sem æfa á vegum UMF-Sindra. Þá yrði einnig hægt að halda lyftingamót á Hornafirði og vonast þau til að geta gert það.
Við höfum orðið vör við töluverðan áhuga á lyftingum í Sporthöllinni og er hópurinn alltaf að stækka sem stundar reglulega lyftingar, ýmist einhliða eða með annarri íþrótt. Nú þegar hefur einn keppandi frá kraftlyftingadeild UMF-Sindra keppt á Bikarmóti á vegum þessa nýja sambands sem haldið var laugardaginn 7. nóvember. Það var Kristján Helgi Hjartarson og lenti hann í fjórða sæti í -100 kg flokki, sem er góður árangur miðað við að hann er einungis 18 ára gamall og þetta er hans fyrsta mót. Það má til gamans geta að hann bætti sig persónulega í 2 af 3 greinum og óskum við honum til hamingju með það.





Skrifa athugasemd