Þórbergssetur hlaut viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu.
Frétt af vef Menntamálaráðuneytisins
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2009 voru afhent á hátíðardagskrá í Ketilhúsinu á Akureyri. Auk þess voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Þorsteini frá Hamri verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2009 og síðan tvær viðurkenningar. Önnur var veitt Þórbergssetri á Hala í Suðursveit og hina fékk Baggalútur. Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar segir:
„Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er menningarsetur reist til minningar um Þórberg Þórðarson rithöfund. Þórbergur var einn af merkustu rithöfundum 20. aldarinnar. Hann fæddist og ólst upp á Hala í Suðursveit sem á þeim tíma var býli í einni afskekktustu byggð á Íslandi. Landfræðileg einangrun Suðursveitar markaðist af kolmórauðum jökulfljótum beggja vegna og að baki byggðar voru risavaxnir fjallgarðar og víðáttumiklar jökulbreiður en brimsandar og hafnleysur við sjávarsíðuna. Nú er Suðurveit í þjóðbraut og Þórbergssetur er þar verðugur minnisvarði um einn af mestu meisturum íslenskrar tungu. Sjálfur sagði Þórbergur fyrir um tilurð safnsins í Sálminum um blómið þar sem hann sagði Lillu Heggu að í framtíðinni myndu kaupmenn reisa ráðstefnuhöll á Hala og að þá myndi fólk koma til að hlusta á sögur úr Suðursveit. Það voru þó heimamenn sem reistu Þórbergssetur með stuðningi frá ríki og sveit. Þeir eru líka ávallt reiðubúnir að ræða við gesti og veita fræðslu og upplýsingar um umhverfi, náttúru og mannlíf."
Viðurkenningarhafar fengu listaverk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur.
Í ráðgjafarnefnd um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar tungu sitja Kristín Helga Gunnarsdóttir, Kristján Árnason og Þórarinn Eldjárn.





Skrifa athugasemd