Gleðilega athafnaviku !
Athafnateygjan - Hornfirðingar með forystuna kl 11:30
Athafnateygjur ganga nú manna á milli um bæinn en Hjalti Vignisson bæjarstjóri og Björk Pálsdóttir hjá Nýsköpunarsmiðstöð eru skráð fyrir teygjum á Höfn. Markmið með þessari teygju er að ýta undir athafnasemi og um leið kynna athafnavikuna. Svo verður gaman að sjá hversu miklu við Hornfirðingar komum í verk á einni viku. Æskilegt er að teygjan fari nokkuð hratt manna á milli til að við náum góðri skráningu. Nánari upplýsingar á athafnateygjan.is/
Þegar þú færð teygjuna þá þarftu að:
1. Ákveða hverju þú ætlar að koma í verk
2. Framkvæma
3. Skrá framkvæmdina á síðunni athafnateygjan.is – skráning
4. Afhenda öðrum einstaklingi teygjuna
5. Sagan endurtekur sig
Guðný Svavarsdóttir er búin að fitja upp kærleikstrefilinn en þar fá bæjarbúar tækifæri á því að vinna að sameiginlegu verkefni sem minnir á samstöðu og kærleik nú er bara að drífa sig á bókasafnið og prjóna. Ef þú hefur aldrei prjónað þá er Guðný fús til að sýna þér handtökin. Klukkan 13 -16 í dag verður málað málverk undir leiðsögn Guðrúnar Ingólfsdóttur þar fá bæjarbúar tækifæri til að skapa listaverk sem verður hengt upp í Nýheimum. Alls eru tíu viðburðir skráðir í dag, hægt er að skoða þá á viðburðadagatali á samfélagsvefnum rikivatnajokuls.is, á dagatali í miðrými Nýheima eða á athafnavika.is.
Með athafnakveðju
Fyrir hönd undirbúningshóps
Björk og Nína





Skrifa athugasemd