Nóvember
Alþjóðleg athafnavika
Alþjóðleg athafnavika

16.11.2009 Nóvember

Hornafjörður með forystu í athafnasemi

Athafnateygjan

 

Allir bæjastjórar landsins, ráðherrar, formenn stjórnmálaflokka, athafnafólk og fjölmiðlamenn fengu Athafnateygjuna afhenta í upphafi Alþjóðlegrar athafnaviku á Íslandi. Það er í þeirra höndum að koma teygjunni áfram og er það von okkar að sem flestir Íslendingar muni fá teygju í vikunni. Um er að ræða verkefni sem mæla mun hversu miklu íslenska þjóðin getur komið í framkvæmd á einni viku. Nú þegar þetta er skrifað hefur Höfn í Hornafirði tekið afgerandi forystu í athafnasemi.

Þegar handhafi teygjunnar hefur framkvæmt eitthvað á að láta teygjuna af hendi til einstaklings að eigin vali. Sá eða sú þarf svo að framkvæma eitthvað til þess að geta komið teygjunni af sér og hvatt næsta mann til athafnasemi. Þannig gengur teygjan manna á milli og hvetur í leiðina þjóðina til framkvæmdagleði. Hver teygja hefur númer og í hvert skipti sem eitthvað er framkvæmt í tengslum við teygjuna er það skráð hér á heimasíðu Athafnateygjunnar. Þannig er hægt að fylgjast með hvaða teygja skilar mestu afköstunum, hvaða sniðugu hlutum fólk kemur í verk og hverju íslenska þjóðin kemur í framkvæmd með Athafnateygjunni.

Hér er tengill inn á Topplista Athafnateygjunnar á síðunni athafnateygjan.is , þar er hægt að skoða nánar athafnirnar með því að smella á Skoða við hvert nafn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica