Gingó frumsýnir nýja línu af hraunkertum
Guðrún Ingólfsdóttir verður með sýningu á handunnum kertum helgina 21.-22. nóvember í húsi N1 við Vesturbraut.
Guðrún hefur verið að hanna og búa til sandkerti sem eru gerð úr efni tengdu náttúrunni og eru þau til sölu víða um land. Á þessari sýningu frumsýnir hún nýja línu af hraunkertum sem minna á glóandi hraun þegar kveikt er á þeim. Einnig frumsýnir hún saltkerti sem hún hefur verið að hanna og þróa aðferðir við að höndla efnið sem best, þau minna á ís og veturinn og eiga vel við aðventuna. Guðrún verður mjög virk í athafnavikunni því auk sýningarinnar ætlar hún að vera með trönurnar sínar í Nýheimum þar sem hún leyfir Hornfirðingum að mála með sér verk og hafa áhrif á listræna túlkun þess.




Skrifa athugasemd