Von á góðum gestum!
Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson í Mánagarði um helgina. Fyrri sýningin verður á laugardaginn (14. nóvember) kl. 20:30 og sú seinni á sunnudaginn (15. nóvember) kl. 15:00. Leikstjóri Saumastofunnar er Daníel Behrend og tónlistarstjóri er Freyja Kristjánsdóttir. Sýningin var frumsýnd á Egilsstöðum um miðjan október og hefur hlotið góðar viðtökur. Saumastofan var fyrst sett á svið á áttunda áratugnum og naut mikilla vinsælda. Mörg sönglaganna í leikritinu eru vel þekkt. Hornfirðingar eru hvattir til að nýta tækifærið og skella sér í leikhús og eiga þar skemmtilega stund! Húsið opnar klukkutíma fyrir sýningu. Miðapantanir í síma 478-1462.





Skrifa athugasemd