Nóvember
Eystrahorn séð frá réttu sjónarhorni

11.11.2009 Nóvember

Fjallafélag Hornafjarðar

Helstu áherslur

 

Ákveðið hefur verið að setja á laggirnar félag sem vinna á að eflingu fjallamennsku í héraðinu.  Markmiðið er að þjappa saman þeim einstaklingum sem áhuga hafa á fjallamennsku.  Í ríki Vatnajökuls eru óþrjótandi möguleikar á því að stunda fjölbreytta fjallamennsku allt árið um kring. Hér eru jöklar alveg við bæjardyrnar og fjöllin umlykja svæðið.  Möguleikarnir eru margir hvort sem litið er til ísklifurs, klettaklifurs eða fjölbreyttra ferðalaga um jöklana og fjöllin í snjó og ís eða að sumarlagi.

Það er því eitt höfuðmarkmiðið með stofnun félagsins að búa til vettvang fyrir fólk sem stunda vill fjallamennsku sér til ánægju  sem síðar gæti orðið að atvinnusköpun félagsmanna og stuðlað að fyrirtækjarekstri í fjallamennsku.

Fyrstu skref

·         Móta félaginu nánari stefnu og safna félagsmönnum.

·         Halda a.m.k tvö námskeið þar sem markmiðið er að kveikja áhuga heimamanna á fjallamennsku, ísklifri og klettaklifri
          og gera fólk hæft til að æfa sig sjálft á milli námskeiða.

·         Kaupa nauðsynlegan búnað.

·         Hefja söfnun á bókum, myndböndum og fræðsluefni um fjalla- og jöklaferðir.

·         Koma upp heimasíðu fyrir félagsskapinn.

·         Standa fyrir fjölbreyttum ferðum  á starfsárinu, stuttum sem löngum.

·         Auðvelda félagsmönnum kaup á tækjum og búnaði með því að koma á tengingum  við búðir og heildsala, innan lands og
           erlendis.

Framtíðar hugleiðingar

Skilgreina betur markmið félagsins en eftirfarandi hefur verið rætt sem þarf að útfæra nánar.

·         Skipuleggja ferðir félagsmanna  á fjöll og jökla um allan heim.

·         Miðla upplýsingum um fjallamennsku

·         Byggja upp þekkingu og kunnáttuum ferðir á jöklum og á fjalllendi í snjó og ís

·         Kynna ísklifur og klettaklifur sem afþreyingu fyrir alla aldurshópa í sveitarfélaginu.

·         Koma upp skipulögðu starfi í sportklifri.  Þá hvorutveggja í ísklifri og innan-og utanhúsklifri

·         Koma upp aðstöðu til æfinga  jafnt innanhús sem utan

·         Standa að viðburðum tengdri starfseminni, jafnvel í tengslum við Ísalp, þar hafa t.d. verið haldnar kvikmyndahátíðir þar 
          sem sýndar eru heimildamyndir um fjallamennsku, fólk sem farið hefur í ferðir segir frá og sýnir ljósmyndir.

·         Vinna að því að byggja upp fjallaskála og önnur mannvirki sem styrkt geta fjalla- og jöklamennsku í sessi, s.s.
          skíðakláfar, búnaðarleigur, fjallahjólastígar o.s.frv.

Á fimmtudaginn 12. nóvember verður haldinn kynningarfundur á Kaffihorninu kl. 12. Eru allir sem hafa áhuga á fjallamennsku hvattir til að koma.

Áhugasamir hafið samband við Hauk Inga 895 9946 eða Óskar Ara 895 7875

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica