Nóvember
Alþjóðleg athafnavika
Alþjóðleg athafnavika

11.11.2009 Nóvember

Alþjóðlega athafnavikan

 

Alþjóðleg athafnavika verður haldin á Íslandi 16. – 22. nóvember 2009 og á sama tíma í yfir 100 löndum. Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur er umsjónaraðili Alþjóðlegrar athafnaviku á Íslandi og sér um skipulagningu, miðlun og kynningu hennar. Tilgangur vikunnar er að virkja alla þjóðina til jákvæðra verka og vekja athygli á mikilvægi athafnasemi fyrir samfélagið í heild sinni. Jafnframt að senda jákvæð og uppbyggileg skilaboð til Íslendinga nú þegar svartsýni og bölmóður er alltof algengt viðhorf í þjóðfélaginu. Snúa við umræðunni um atvinnulífið og gefa Íslendingum tilefni til að horfa björtum augum fram á veginn. Sjá nánar dagskrá vikunnar og þemu á http://www.athafnavika.is/.

 

Einn af viðburðum athafnavikunnar er Athafnateyjan, um er að ræða verkefni sem mæla mun hversu miklu íslenska þjóðin getur komið í framkvæmd á einni viku. Teygjan, sem hægt er að smeygja um úlnlið sér, er send á valin hóp áberandi einstaklinga í athafnalífi, stjórnmálum og fjölmiðlum – fólks sem hefur áhrif á umhverfi sitt og er í aðstöðu til að vera öðrum til fyrirmyndar. Bæjarstjórar landsins, ráðherrar, formenn stjórnmálaflokka, athafnafólk og fjölmiðlamenn munu fá Athafnateygjuna afhenta nk. mánudag, þ.e. í upphafi Alþjóðlegrar athafnaviku á Íslandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica