Frábært námskeið í ísklifri
Þann 6. nóvember fóru 15 nemendur frá FAS í Skaftafell. Tilgangur ferðarinnar var að fara á námskeið í ísklifri. Farið var af stað seinni part föstudags og námskeiðið hófst þá um kvöldið með fyrirlestri og grunnkennslu í hnútum og hvernig klifurbúnaður virkar. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum.
Laugardagsmorguninn var tekinn snemma. Byrjað var að æfa klifur og var það gert í Hnappavallaklettunum sem er eitt besta klifursvæði landsins. Þegar allir voru orðnir þrælklárir var farið upp á jökul þar sem klifrað var í ís og almenn tækni við jöklagöngu var kennd.
Sunnudagurinn var einnig tekinn snemma og farið í sprungubjörgun, fyrst var farið yfir grunnatriðin í Skaftafelli en að því loknu var farið upp á jökul í alvöruna. Þá sigu krakkarnir ofan í sprungu og þeir sem uppi voru þurftu að nota það sem þeir höfðu lært til þess að bjarga hinum upp úr sprungunni. Krakkarnir stóðu sig allir með prýði og við getum öll verið stolt af þessu hóp.
Verkefni eins og þetta er mjög dýrt og var því leitað eftir styrkjum til þess að fjármagna ferðina. Landsbankinn var svo rausnarlegur að styrkja okkur og viljum við þakka kærlega fyrir það. Einnig fengum við styrk frá NEED en það er verkefni sem skólinn tekur þátt í





Skrifa athugasemd