Stefnt er á að völlurinn verði tilbúinn til notkunar í vor
Á lóð vegagerðarinnar á Höfn gefur nú að líta heljarmikinn grunn fullan af vatni svo líkja má við sundlaug. Þarna er verið að byrja á grunni undir gervigrasvöll og er verktaki við þá vinnu Rósaberg ehf. Völlurinn verður merktur 68 x 48 m. sem er lögleg stærð til keppni í sjö manna fótbolta. Stefnt er á að völlurinn verði fullbúinn og tilbúinn til notkunar í vor.
Nýi völlurinn bætir stórlega aðstöðu fyrir knattspyrnufólk hér á svæðinu og öll aðstaða til æfinga verður orðin mjög góð. Í framtíðinni er svo áætlað að byggja yfir völlinn en fótboltahús hefur verið á áætlun sl.1-2 ár en eins og fleiri stórframkvæmdir hafa þær tafist vegna efnahagsástandsins.





Skrifa athugasemd