Skaftafellskar þjóðsögur og sagnir koma út að nýju
Bókin Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir eru komnar út að nýju. Þeim var upphaflega safnað af Guðmundi Jónssyni bónda í Hofelli í upphafi 20. aldar og gefnar út ásamt æviágripi árið 1946. Handritið sem varðveist hefur er frá 1911 en það inniheldur allar sagnir, þjóðsögur og ævintýri sem birtast í þessari útgáfu. Þessi útgáfa Skaftfellskra þjóðsagna er talsvert frábrugðin fyrri útgáfu. Sjö ævintýrum er bætt við nýju útgáfuna. Upphaflegu handriti Guðmundar er einnig fylgt eftir í hvívetna sem var ekki raunin við þá fyrri. Til viðbótar við upprunalegt handrit varðveittist eintak Einars Ólafs Sveinssonar af bókinni. Það eintak hafði Einar Ólafur sent Hjalta Jónssyni í Hólum í Hornafirði, bróður Guðmundar, til yfirlestrar og athugasemda. Hjalti gerði nokkrar breytingar á sögum, kveðskap og leiðrétti nöfn örnefna svo eitthvað sé nefnt. Við vinnu að útgáfunni voru þessar athugasemdir Hjalta teknar til greina.
Þjóðsögur og ævintýri eru mikilvægur hluti af alþýðumenningu Íslendinga en þær hafa varðveist sem munnmæli, mann fram af manni. Sagnir um atburði og fólk er mikilvæg heimild um líf og atvinnuhætti fyrri alda og æviágrip Guðmundar er stórfróðleg lesning um búskap, og innreið nútímans í íslenskar sveitir í upphafi 20. aldar.
Fjölmargar myndir prýða bókina. Fjölskylda Egils Jónssonar á Seljavöllum gefur bókina út í minningu hans en hann var hvatamaður að útgáfunni.
Bókin verður til sölu víðsvegar í sveitarfélaginu fram að jólum. Jafnframt er hægt að hafa samband við Hjalta Þór Vignisson í síma 822-7950 eða á hjaltivi@hornafjordur.is.





Skrifa athugasemd