Nóvember
Sundlaug Hafnar
Sundlaug Hafnar
Mynd Björn Arnarson

06.11.2009 Nóvember

Sundlaugargestir orðnir 50 þúsund

44. þúsund gestir hafa komið í nýju sundlaugina frá 23.apríl til 1.október. Sexþúsund gestir  komu í gömlu laugina á fyrstu mánuðum ársins þannig að fjöldi gesta í sund eru orðinn 50.þúsund. Allt árið í fyrra komu 24.500 gestir í gömlu laugina. Af þessu má sjá að aðsóknin hefur þegar tvöfaldast. Flestir komu í sund í júlí eða 12.853 og var laugardagurinn á Humarhátíðinni mest sótti dagurinn með 772 gesti.  Í október hefur talsvert dregið úr aðsókn en þrátt fyrir það voru gestir þá 3100 en voru 1286 í sama mánuði í fyrra. Fólk er eindregið hvatt til að heimsækja sundlaugina og njóta þess sem þar er upp á boðið s.s. að fá sér góðan sundsprett, fara í heitu pottana en annar þeirra er með góðu vatnsnuddi, kíkja í gufuna og slappa af í vaðlauginni.  Sundlaugin er opin á virkum dögum frá kl. 06:45 til 21:00 og frá kl. 10:00 til 17:00 um helgar. Það er því tilvalið að ljúka vinnudegi með heimsókn í sundlaugina og láta líða úr sér.

Alþjóðleg athafnarvika hefst mánudaginn 16. nóvember og laugardaginn 21. nóvember ætlar sundlaugin að taka þátt í vikunni með því að hafa frítt í sundlaugina og bjóða upp á tónlist ofl. skemmtilegt.  Nánar auglýst síðar.

Heimsókn í sundlaugina er hressandi heilsubót.

Haukur H. Þorvaldsson forstöðumaður íþróttamannvirkja

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica