Nóvember
Í Þórbergssetri
Í Þórbergssetri

06.11.2009 Nóvember

Safnahelgi á Suðurlandi

Velkomin í Þórbergssetur

 

Þórbergssetur ákvað að taka þátt í safnahelgi á Suðurlandi að þessu sinni. Opið hús verður  í Þórbergssetri laugardaginn 7. nóvember og sunnudaginn 8. nóvember frá kl 13:00 - 17:00.  Kynna á verkefnið Söguslóð á Suðausturlandi sem var samstarfsverkefni menningarstofnana og ferðaþjónustuaðila frá Djúpavogi að Skaftafelli og fjallar um landnám, fyrstu mannaferðir á Suðausturlandi, papasögur og tengsl Íslands við Skotland og skosku eyjarnar á fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Einnig verða einstaka munir sýndir sérstaklega og sögð saga þeirra. Þar má nefna fjalhöggið úr Hvannadal, gamlar bækur, stytta sem Þórbergur gaf Lillu Heggu, merkilegur mannbroddur, og krossinn hans Þórbergs.
Kaffi verður á könnunni og allir eru velkomnir sem vilja renna í sveitina og skoða sig um í Suðursveit nú í byrjun vetrar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica