Nóvember
Kyrrlátt kvöld við fjörðinn
Kyrrlátt kvöld við fjörðinn/Sunny night by Hornafjordur
Mynd: Óðinn Eymundsson

06.11.2009 Nóvember

Traustur fjárhagur sveitarsjóðs

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2010 var tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar þann 5. nóvember.  Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og sagði sveitarsjóð standa traustum fótum nú um stundir.  Hann þakkaði bæjarráði og forstöðumönnum sérstaklega fyrir þeirra framlag við gerð fjárhagsáætlunar.  Í máli hans kom fram að áætlunin eins og hún var kynnt nú sýni hvernig heildartekjur og heildar gjöld komi til með að þróast á árinu 2010 en nokkur vinna væri eftir sem færi fram á milli umræðna um forgangsröðun framkvæmda, viðhalds og einnig að taka til skoðunar óskir forstöðumanna um breytingar á rekstrarömmum og kaup á stofnbúnaði.

 

Sagði bæjarstjóri að markmið við gerð fjárhagsáætlunar árið 2010 hafi verið það sama og fyrir ári, það að verja eftir mætti stöðu fjölskyldna í sveitarfélaginu og starfsmanna.  Í máli bæjarstjóra kom m.a. eftirfarandi fram:

  • Útsvar og fasteignaskattar verða óbreyttir.  
  • Gjaldskrár sem snerta hag heimila með beinum hætti  verða ekki hækkaðar, s.s. leikskólagjöld, gjöld fyrir lengda viðveru, fæðisgjöld í skólum og tónskólagjöld. 
  • Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs verður ekki lækkaður. 
  • Viðhald húsa og framkvæmdir verða ákveðnar á milli umræðna en við fyrri umræðu er gert ráð fyrir 200 m.kr. framkvæmdum í A-hluta og 92 m.kr. í B-hluta.  Auk þess eru 20 m.kr. í viðhald á eignum sveitarfélagsins. 
  • Umfangsmiklar breytingar hafa orðið á rekstri Grunnskóla Hornafjarðar síðustu ár.  Fyrst voru allir þrír skólarnir, Nesjaskóli, Hafnarskóli og Heppuskóli, sameinaðir, en á síðasta ári var Hafnarskóli tekin til gagngerra endurbóta og skólahald flutt úr Nesjum á Höfn.  Þessar breytingar leiða til hagræðingar í skólaakstri, rekstri húsnæðis og heildstæðara skólastarfs.  Á næsta skólaári verður ráðist í ákveðnar breytingar á gæslu og fjölda kennslustunda.
  • Ákveðið hefur verið að skoða starfsemi tónskólans sérstaklega, m.a. í tengslum við að Sindrabær hefur verið gerður að tónlistarhúsi og móta verði framtíð skólans með það fyrir augum.
  • Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar yfir sumartímann mun einnig verða tekin til skoðunar.
  • Fyrirhugað er að endurskoða á stjórn og fundarsköpum Tillögum að nýrri samþykkt verði skilað af fráfarandi bæjarstjórn í vor og eftir kosningar verði það nýrrar bæjarstjórnar að ákveða hvort fram komnar tillögur verði samþykktar.

Þrátt fyrir mikla óvissu um þróun efnahagsmála ber flestum heimildum saman um að uppgangur hefjist þegar líða tekur á árið 2010. 

 

 

 

 A-hluti - sveitarsjóður  2009 (útkomuspá)       2010    
 Tekjur

 1.334.512

1.248.500

 Gjöld

 -1.249.290

 -1.210.447

 Fjármagnsliðir

 -11.191)

-27.507

 Rekstrarniðurstaða

 74.031

 10.546

 Veltufé frá rekstri

 171.176

 104.422

 Handbært fé í árslok

 435.359

 214.992

  

B-Hluti Hafnarsjóður Veitur Kaupleiguíbúðir
Tekjur

129.150

59.000

31.700

Gjöld

-83.632

-29.352

-21.040

Fjarmagnsliðir

-7.705

-26.904

-24.815

Rekstrarniðurstaða

37.813

2.744

-14.155

Veltufé frá rekstri

51.214

24.790

9.735

Framkvæmdir

53.500

38.500

 

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands         2010     
Framlög

409.506

Aðrar tekjur

17.870

Sameiginlegur kostnaður færður á deildir      

26.005

Laun og launatengd gjöld

-321.575

Annar kostnaður

-136.734

Rekstrarniðurstaða

-4.928



 

Hér má nálgast Fjáragsaáætlun fyrri umræða 2010 (pdf)

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica