Nóvember
Bólusetning fyrir forgangshópa
Inflúensa H1N1
Miklar annir hafa verið á heilsugæslunni við bólusetningu við alheimsinflúensu A(H1N1).
Nú er verið að bólusetja forgangshópinn, einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma og þungaðar konur og eru þessir einstaklingar hvattir til að panta sér tíma sem fyrst.
Með „undirliggjandi sjúkdómum“ er átt við eftirfarandi:
- Hjartasjúkdóma einkum hjartabilun, alvarlega kransæðasjúkdóma og alvarlega meðfædda hjartasjúkdóma.
- Öndunarfærasjúkdóma sem þarfnast stöðugrar fyrirbyggjandi lyfjameðferðar (meðal annars astma).
- Hormónasjúkdóma (insúlínháða sykursýki og barksteraskort).
- Tauga- og vöðvasjúkdóma sem truflað geta öndun.
- Alvarlega lifrarsjúkdóma (skorpulifur).
- Mikla offitu.
- Ónæmisbælandi sjúkdóma (á til dæmis við um krabbameinsmeðferð og líffæraþega).
Samkvæmt Landlæknisembættinu er gert ráð fyrir að hægt verði að bjóða almenningi upp á bólusetningu upp úr miðjum nóvember.





Skrifa athugasemd