Nóvember
Vísindadagar í FAS
Miðvikudaginn 4. nóvember hófust svokallaðir vísindadagar í FAS. Þá á að vinna að ýmiss konar verkefnum undir stjórn kennara í stað hefðbundinnar kennslu og er hér um nýjung að ræða í skólastarfinu.
Í síðustu viku gafst nemendum kostur á að velja sér verkefni sem þeir hefðu sérstakan áhuga á. Vísindadagarnir standa frá kl.8 - 16 á miðvikudag og fimmtudag. Á föstudag verður einnig byrjað klukkan 8 en um og eftir hádegi munu hóparnir kynna afrakstur vinnu sinnar. Þá gefst almenningi kostur á kynna sér verkefnin nánar.





Skrifa athugasemd